Súrt og sætt í dag

Blak

Bæði karla- og kvenna lið KA byrja Mizuno-deildina á að taka á móti Þrótti Nes. Bæði lið voru staðráðin í því að klára þessa leiki með sigri.

Kvennaliðið tapaði því miður 3-0 á móti sannfærandi liði Þóttar Nes. Stigahæsti leikmaður KA var María Diaz Perez með alls 9 stig. Stelpurnar eru staðráðnar í því að hefna þennan leik og fá þær möguleikann strax á morgun kl. 13:00. Við hvetjum sem flesta til að mæta á leikinn og styðja stelpurnar. Fyrir þá sem eiga ekki heimangengt þá verður leikurinn einnig sýndur á KAtv.

Karlaliðið tók sig til og sigraði Þrótt Nes 3 - 0. Allt stefndi í jafnan og hörkuspennandi leik. Sigþór Helgason átti mjög góðan leik og var stigahæstur KA manna með 15 stig, 7 af þeim komu beint úr uppgjöf.

Myndir frá leikjunum er að finna hér.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is