Úrslit á Íslandsmótinu í strandblaki (myndband)

Blak
Úrslit á Íslandsmótinu í strandblaki (myndband)
Verðlaunahafar á mótinu

Um helgina fór fram Íslandsmótið í strandblaki í Kjarnaskógi á Akureyri en blakdeild KA sá um umsjón mótsins. Veðrið lék við keppendur og voru aðstæður algjörlega til fyrirmyndar. KA-TV sýndi frá mótinu sem og gerði þetta skemmtilega samantektarmyndband frá úrslitaleikjunum.

Alls var leikið í þremur deildum kvennamegin og í einni hjá körlunum og var gríðarleg spenna þegar kom að úrslitaleikjunum á sunnudeginum. Hér má sjá verðlaunahafana í deildunum.

1. deild karla
1. sæti – Austris Bukovskis og Sigþór Helgason
2. sæti – Karl Sigurðsson og Arnar Halldórsson
3. sæti – Arnar Már Sigurðsson og Filip Pawel Szewczyk

1. deild kvenna
1. sæti – Velina Apostolova og Perla Ingólfsdóttir
2. sæti – Heiðbjört Gylfadóttir og Laufey Björk Sigmundsdóttir
3. sæti – Birna Baldursdottir og Dýrleif Hanna Sigmundsdóttir

2. deild kvenna
1. sæti – Helga Guðrún Magnúsdóttir og Sólveig Jónasdóttir
2. sæti – Sandra B. Magnúsdóttir og Rasa Ratkuté
3. sæti – Ragnheiður Eiríksdóttir og Ásdís Linda Sverrisdóttir

3. deild kvenna
1. sæti – Birna Ruth Jóhannsdóttir og Hrönn Margrét Magnúsdóttir
2. sæti – Telma Hrönn Númadóttir – Charlotta Björk Steinþórsdóttir
3. sæti – Ástrún Svala Óskarsdóttir / Þórhildur Hrafnsdóttir

Í lok móts voru stigameistarar einnig krýndir en Perla Ingólfsdóttir var stigameistari kvenna og Janis Novikovs var stigameistari karla. Við óskum að sjálfsögðu öllum verðlaunahöfum til hamingju og þökkum fyrir hve vel mótið tókst.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is