Byrjendablak fullorðinna

Í september mun Blakdeild KA standa fyrir námskeiði í blaki fyrir byrjendur. Námskeiðið er hugsað fyrir alla, konur jafnt sem karla. Kennt verður 2x í viku í KA heimilinu, mánudag kl. 19:30 og fimmtudag kl. 21.

Frábær leið til að koma sér inn í öldungablakið. Fjöldatakmörkun verður á námskeiðið og því gildir fyrstur kemur fyrstur fær.

Verð 8.000 kr. (5 skipti). Fyrsti tími er 4. september.

Nánari upplýsingar veitir Steinþór steinthortr@gmail.com eða í síma 8423335

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is