Alex Máni lék í stórsigrum U-15

Fótbolti
Alex Máni lék í stórsigrum U-15
Alex Máni stóð fyrir sínu

Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 15 ára og yngri lék á dögunum æfingaleiki gegn úrvalsliðum Peking og Hong Kong. KA átti einn fulltrúa í hópnum en það er varnarmaðurinn Alex Máni Garðarsson. Alex Máni var þarna að leika sína fyrstu landsleiki og óskum við honum að sjálfsögðu til hamingju með áfangann.

Strákarnir hófu leik gegn liði Peking og er skemmst að segja frá því að Ísland vann 13-0 stórsigur og kom Alex Máni inná sem varamaður í leiknum. Í leiknum gegn Hong Kong kom okkar maður inn í byrjunarliðið og stóð fyrir sínu í 7-0 sigri. Ekki amalegt að vinna þessa tvo leiki samanlagt 20-0!


Byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Hong Kong. Alex Máni er fjórði frá vinstri í fyrri röð. (mynd: KSÍ)


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is