Ásgeir með nýjan 2 ára samning við KA

Fótbolti
Ásgeir með nýjan 2 ára samning við KA
Tufa og Ásgeir sáttir með nýjan samning

Ásgeir Sigurgeirsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og leikur því með liðinu næstu árin. Þetta eru frábærar fréttir enda hefur Ásgeir verið hreint út sagt magnaður fyrir liðið bæði sumarið 2016 þegar liðið vann Inkasso deildina sem og 2017 þegar liðið undirstrikaði veru sína í deild þeirra bestu.

Ásgeir lék 22 leiki með KA í Pepsi deildinni í fyrra og skoraði alls 5 mörk í þeim leikjum og má sjá þau í myndbandinu hér fyrir ofan. Þá skoraði Ásgeir 8 mörk í 17 leikjum í Inkasso deildinni árið áður. Við erum mjög ánægð með að halda Ásgeiri áfram hjá félaginu og erum spennt fyrir komandi sumri sem hefst 28. apríl með útileik gegn Fjölni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is