Davíð Rúnar til liðs við Magna

Fótbolti

Davíð Rúnar Bjarnason er genginn til liðs við félaga okkar, Magna frá Grenivík. Við þökkum Davíð kærlega fyrir hans þjónustu fyrir KA. 

Davíð Rúnar er uppalinn í KA og var hluti af sterkum '91 árgangi hjá KA. Hann lék alla sína yngri flokka hjá félaginu og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki 2008, eða 17 ára gamall. Síðan þá hefur hann leikið 152 mótsleiki fyrir KA og skorað 11 mörk í þeim. Þá hefur hann einnig leikið aragrúa af æfinga- og undirbúningsleikjum fyrir KA.

Davíð Rúnar tók við fyrirliðabandinu haustið 2015 og bar það  sumarið 2016, þegar KA fór upp um deild. Það var Davíð Rúnar sem lyfti bikarnum fyrir KA.

KA vill þakka Davíð kærlega fyrir sína þjónustu fyrir félagið, í bili og óskar honum velfarnaðar hjá vinum okkar á Grenivík sem spila í Inkassodeildinni komandi sumar. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is