Heimaleikur hjá Þór/KA gegn KR

Fótbolti
Heimaleikur hjá Þór/KA gegn KR
Stelpurnar ætla allar að leggjast á eitt í dag

Þór/KA tekur á móti KR á Þórsvelli í dag klukkan 17:30 í 4. umferð Pepsi deildar kvenna. Stelpurnar hafa farið frábærlega af stað í sumar og eru á toppnum með fullt hús stiga og markatöluna 10-1. Af þessum 10 mörkum þá hefur Sandra María Jessen skorað 5 og Sandra Mayor 3. Það er því ansi líklegt að upplegg KR liðsins í dag sé að loka Söndrurnar tvær.

Á sama tíma hafa gestirnir úr Vesturbænum 3 stig en KR vann fyrsta leik sinn í deildinni 0-1 þegar liðið mætti til Selfoss en hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum eftir það, 1-2 gegn FH og 2-0 gegn ÍBV.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta og styðja stelpurnar til sigurs, liðið er með mjög skýrt markmið í sumar og það er að vinna alla titla sem í boði eru. Nú þegar er liðið Meistari Meistaranna og Deildabikarmeistari en sumarið er langt og ljóst að við þurfum að styðja við stelpurnar svo að takmarkið náist, áfram Þór/KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is