4 fulltrúar KA í yngri landsliðum í fótbolta

Fótbolti

Það er mikil viðurkenning fyrir yngri flokkastarfið hjá KA þegar krakkar úr okkar röðum eru valdir í verkefni hjá yngri landsliðum Íslands. Nýlega voru 4 aðilar úr KA valdir í verkefni í fótboltanum og óskum við þeim að sjálfsögðu til hamingju með það.

Þorvaldur Daði Jónsson, fæddur 2002, var á landsliðsæfingum í byrjun mánuðar og Alex Máni Garðarsson, fæddur 2003, var á landsliðsæfingum á Akranesi í síðasta mánuði. Báðir stóðu sig með prýði og fá vonandi fleiri verkefni í framtíðinni.

Þá munu þau Björgvin Máni Bjarnason og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, bæði fædd 2004, taka þátt í knattspyrnuskóla KSÍ sem fer fram í Garði.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is