KA sigraði Magna í fyrsta leik Lengjubikarsins

Fótbolti
KA sigraði Magna í fyrsta leik Lengjubikarsins
Sæþór skoraði eitt mark í gær

KA sigraði Magna 2-0 í Lengjubikarnum í Boganum í gærkvöldi

Leikurinn var ekki margra mínútna gamall þegar að Sæþór Olgeirsson skoraði fyrir KA, eftir að KA vann boltann á góðum stað og hann barst til Elfars Árna sem lagði hann síðan fyrir Sæþór sem skoraði í autt mark Magna-manna.

Leikurinn róaðist töluvert eftir markið á upphafsmínútunum. Magnamenn fengu að halda boltanum innan liðs og KA varðist vel, og gestirnir frá Grenivík sköpuðu sér engin hættuleg færi.

Þegar komið var fram á 44. mínútu tvöfaldaði Daníel Hafsteinsson forystu KA með bylmingsskoti fyrir utan teig. Boltinn barst úr teig Magnamanna sem datt fyrir lappirnar á Daníel sem hamraði honum í fjærhornið, óverjandi fyrir Steinþór Auðunsson í marki Magna.

Síðari hálfleikurinn var rólegur á báða bóga, og lítið um opin færi. Lokatölur því 2-0 fyrir KA og fyrsti sigurinn í Lengjubikarnum kominn í hús. Næsti leikur KA í Lengjubikarnum er á laugardaginn kl. 17:00 í Boganum gegn ÍR. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is