KA tekur á móti Fylki á sunnudag

Fótbolti

KA liðið hefur verið að klífa upp töfluna í Pepsi deildinni eftir mjög gott gengi að undanförnu. Nú þegar 12 umferðir eru búnar þá er KA með 15 stig og er aðeins 4 stigum frá 4. sætinu en á sama tíma aðeins 4 stigum frá 11. sætinu sem er fallsæti.

Liðið sem situr í 11. sæti er einmitt mótherji KA núna á sunnudaginn en það eru Fylkismenn. Þessi leikur getur því breytt ansi miklu hvernig restin af sumrinu spilast enda myndi sigur koma okkar liði 7 stigum frá fallsæti og enn betur inn í pakkann fyrir miðri deild. Tap myndi hinsvegar færa Árbæinga einungis stigi frá okkar liði.

Það er því ansi mikilvægt að við fylkjum liði og styðjum okkar lið á Greifavellinum á sunnudaginn klukkan 17:00. Ef að einhverntímann er talað um 6 stiga leik að þá er það núna. Sjáumst á vellinum gott fólk og áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is