KA tekur á móti Val í Pepsi-deildinni

Fótbolti
KA tekur á móti Val í Pepsi-deildinni
Úr fyrri leik liðanna í sumar

KA fær verðandi Íslandsmeistara í heimsókn fimmtudaginn 14 september.  Valur vann fyrri leik liðanna 1-0 í hörkuleik fyrr í sumar með sjálfsmarki okkar manna.  Valur er það lið sem hefur verið hvað best í allt sumar og hefur náð að spila nokkuð jafnan leik meðan önnur lið hafa verið nokkuð sveiflukennd.  Valsliðið er með 9 stig út úr síðust 3 leikjum meðan KA-menn hafa fengið 6 stig úr síðustu 3 leikjum. Callum Williams tekur út leikbann eftir rautt spjald í síðast leik en vonandi er Guðmann búinn að jafna sig af meiðslum sem hafa haldið honum frá vellinum frá því í lok maí.  

Leikurinn fer að sjálfsögðu fram á Akureyrarvelli og hefst kl 17.00.  Hvetjum alla til þess að mæta í gulu og hvetja okkar menn áfram.  Hamborgarar á grillinu frá 16.30.

 

ÁFRAM KA!!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is