KA2 með öruggan sigur á KF

Fótbolti
KA2 með öruggan sigur á KF
Sæþór skoraði eitt mark í gær

KA2 lék við KF í Kjarnafæðismótinu í gær. KA2 sigraði leikinn sannfærandi 4-1.

KA var mikið sterkari aðilinn í byrjun leiks og skoraði mark eftir aðeins 13 mínútur. Þar var að verki Brynjar Ingi Bjarnason, miðvörðurinn stóri og stæðilegi. Nokkrum mínútum síðar, eða á 26. mínútu tvöfaldaði Birgir Baldvinsson forystu KA, 2-0. Fjórum mínútum síðar kom Sæþór Olgeirsson KA í 3-0 og þannig var staðan í hálfleik.

Síðari hálfleikurinn var jafnari en KA komst í 4-0 með marki frá Viktori Má Heiðarssyni áður en að KF náði að klóara í bakkann með marki frá Grétari Bergssyni. Lokatölur 4-1.

KA2 er með fullt hús stiga eftir tvo leiki í B-deild Kjarnafæðimótsins. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is