KA3 tapaði fyrir KF

Fótbolti
KA3 tapaði fyrir KF
Stór hluti KA3 varð Íslandsmeistari í 3. flokki

Hér má sjá umfjöllun knattspyrnudómarafélags Norðurlands:

KA 3    2 - 3    KF
1-0    10’    Gunnar Darri Bergvinsson
2-0    14’    Þorsteinn Már Þorvaldsson

2-1    68’    Kristófer Andri Ólafsson
2-2    75’    Jón Árni Sigurðsson (víti)
2-3    80’    Grétar Áki Bergsson

Leikur KA 3 og KF byrjaði frekar rólega og það gerðist lítið sem ekkert fyrstu 9 mínútur leiksins. Á 10. mínútu leiksins á áttu KA 3 góða sókn frá vinstri yfir á hægri kant þar sem Gunnar Darri Bergvinsson fékk boltann, lék honum fyrir framan vörn KF og smurði boltann síðan í fjærhornið - óverjandi fyrir Halldór Ingvar Guðmundsson markvörð KF. 1-0 fyrir KA3.

Einungis fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Þorsteinn Már Þorvaldsson forystu KA. Það var lítið sem ekkert að gerast en það myndaðist þvaga í vítateig KF manna og boltinn barst til Þorsteins sem skaut í gegnum þvöguna og breytti um stefnu þannig að markmaður KF var varnarlaus og þurfti að sækja boltann öðru sinni í netið. Bæði áhorfendur og sá sem skrifar þetta vissu ekki hvað hafði gerst því að reiknuðu með að boltinn hafi farið framhjá því leikmenn voru ekkert að fagna þessu of mikið, en niðurstaðan var mark og staðan orðin 2-0 fyrir KA3. Eftir þetta mark gerðist fátt markvert, bæði lið fengu hálffæri en KA 3 var meira með boltann. Hálfleikstölur voru 2-0 KA-mönnum í vil.

Eitthvað hefur þjálfari KF manna sagt við sína menn í hálfleik, því það var allt annað lið sem mætti í þann seinni. Fyrstu 20 mínútur síðari hálfleiks voru KF menn mun meira með boltann og reyndu að sækja hratt á KA 3 en urðu lítið ágengt. Sókn KF bar árangur á 68. mínútu. KF menn eru með boltann og spila honum vel á milli sín sem endar með góðri sendingu útá vinstri kantinn þar sem Baldvin Freyr Ásmundsson fær boltann. Baldvin brýst upp að endamörkum og sendir boltann fyrir á fjærstöng þar sem Kristófer Andri Ólafsson mætir og skallar boltan yfir markmann KA 3 og í vinstra markhornið, 2-1. Nú var þetta orðinn leikur aftur því KF menn miklu mun betri og allt annað að sjá til þeirra frá því í fyrri hálfleik þar sem þeir voru afar slakir. Á 75. mínútu var dæmd vítaspyrna á KA 3 þar sem boltinn fór í hönd varnarmanns þeirra, auðveld ákvörðun fyrir dómara leiksins. Úr vítaspyrnunni skoraði Jón Árni Sigurðsson örugglega framhjá Arnari Þór Stefánssyni markmanni KA3. Staðan orðin 2-2.

Sigurmark KF kom svo 10 mínútum fyrir leikslok. KF menn fengu þá hornspyrnu frá vinstri, boltinn sendur yfir á fjærstöng og KA3 reyndi að hreinsa boltann í burtu en gera það ekki betur en svo að boltinn dettur beint fyrir framan Grétar Áka sem hamrar boltann í hægra hornið, glæsilegt mark óverjandi fyrir markmann KA3. Staðan 2-3 fyrir KF sem tókst að snúa töpuðum leik yfir í sigurleik. Leikurinn fjaraði út síðustu mínúturnar og KF sigldi sigrinum í höfn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is