Kynningarkvöld knattspyrnudeildar og kvöldmatur á fimmtudag

Fótbolti

Það er nóg um að vera á fimmtudaginn í KA-heimilinu.


Klukkan 19:30 verður síðasta matarkvöldið í KA-heimilinu en þar verður boðið upp á nautarib-eye, franskar og bernaise-sósu. Það kostar 2000kr, sem er gjöf en ekki gjald fyrir hlaðborð af bestu gerð. Einn stórskemmtilegur fyrirlesari mun messa yfir mannskapnum yfir matnum og að venju hvílir mikil leynd yfir því hver það er.
Þeir sem hafa áhuga á því að mæta mega láta Siguróla vita með tölvupósti (siguroli@ka.is) en það er þó ekki nauðsynlegt. Posi er á staðnum til að taka við greiðslu.


Klukkan 20:30 er síðan árlegt kynningarkvöld knattspyrnudeildar þar sem Túfa mun kynna til leiks lið sumarsins í Pepsi-deildinni. Léttar veitingar verða í boði. Við vonumst til að sjá sem flesta KA-menn á svæðinu til þess að þjappa hópnum saman fyrir komandi átök. Það er því tilvalið að mæta á báða viðburði, en þeir munu ekki skarast. Þeir sem mæta í matinn missa ekki af neinu á kynningarkvöldinu.

Ársmiðasala er einnig hafin hjá KA á leiki sumarsins. Þeir verða tilbúnir til afhendingar og til sölu á kynningarkvöldinu. Þrennskonar ársmiðar verða í boði. 

Gullmiði – sem er aðgöngumiði á alla heimaleiki KA, kaffi í hálfleik og tveir viðburðir á vegum knattspyrnudeildar verð: 50.000kr

Silfurmiði – sem er aðgöngumiði á alla heimaleiki KA og kaffi í hálfleik verð: 30.000kr

Bronsmiða – sem er aðgöngumiði á alla heimaleiki KA verð: 20.000kr

Af gefnu tilefni mun kosta 2000kr á hvern heimaleik KA í sumar í Pepsi-deildinni og eru þeir 11 talsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is