N1-mótinu lauk um helgina (myndband)

Fótbolti

32. N1-móti KA lauk á laugardaginn en mótið hófst á miðvikudeginum. Við þökkum öllum þeim sem komu að mótinu kærlega fyrir hve vel til tókst, hvort sem það eru keppendur, þjálfarar, liðsstjórar, gestir eða sjálfboðaliðar. Alls fóru fram 840 leikir á mótinu sem er nýtt met en það gerir 25.200 mínútur af fótbolta sem eru 420 klukkustundir!

Colorwaves mætti á svæðið og gerði þetta stórglæsilega myndband frá mótinu.

Sigurvegarar á mótinu í ár voru eftirfarandi:

N1 mótsmeistari: Breiðablik (besti samanlagður árangur)

Argentíska deildin: FH 1

Brasilíska deildin: Grótta 1

Chile deildin: ÍR 2

Danska deildin: Þór 4

Enska deildin: Grindavík 2

Franska deildin: Hvöt/Kormákur 2

Gríska deildin: Breiðablik 12

Stuðboltar mótsins: Fjölnir

Háttvísisverðlaun Sjóvá: Huginn

Sveinsbikarinn: Stjarnan (háttvísi innan sem utan vallar)

Menn leiksins í úrslitaleik Argentísku deildarinnar:
Elmar Rútsson - FH 1
Alexander Rúnar - HK 1

Menn leiksins í úrslitaleik Brasilísku deildarinnar:
Viktor Orri Guðmundsson - Grótta 1
Mikael Breki Þórðarson - KA 3

Menn leiksins í úrslitaleik Chile deildarinnar:
Óli Björn - ÍR 2
Benjamín Bergsson - KA 4

Menn leiksins í úrslitaleik Dönsku deildarinnar:
Óttar Baldursson - Fram 4
Stefán Björn - Þór 4

Menn leiksins í úrslitaleik Ensku deildarinnar:
Þórhallur - Höttur 2
Einar Snær - Grindavík 2

Menn leiksins í úrslitaleik Frönsku deildarinnar:
Anton Einar Mikaelsson - Hvöt/Kormákur 2
Ísar - Leiknir 2

Menn leiksins í úrslitaleik Grísku deildarinnar:
Benedikt Elí Ragnarsson - Breiðablik 12
Pétur - Haukar 6


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is