Ólafur Aron Pétursson á láni til Magna

Fótbolti

Ólafur Aron Pétursson er genginn til liðs við Magna frá Grenivík á láni frá KA út tímabilið.

Ólafur Aron er fæddur árið 1995, og átti einmitt afmæli í gær og fagnaði 23 ára afmæli sínu. Í dag skrifaði hann síðan undir lánssamning við nágranna okkar í Magna. Hann mun koma til með að styrkja þá í harðri baráttu framundan í Inkasso deildinni.

Ólafur Aron er uppalinn KA-maður og hefur tekið þátt í 49 leikjum í deild og bikar fyrir KA og skorað í þeim þrjú mörk. Ólafur Aron hefur komið við sögu í 7 leikjum á þessu tímabili, nú síðast gegn Val á Origo vellinum.

Aron, eins og hann er alltaf kallaður, verður aftur leikmaður KA á tímabilinu loknu og óskum við honum góðs gengis hjá Magna!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is