Stjarnan tekur á móti Þór/KA í dag

Fótbolti
Stjarnan tekur á móti Þór/KA í dag
Baráttuleikur framundan (mynd: Þórir Tryggva)

Þór/KA leikur lokaleik sinn í Pepsi deild kvenna í sumar er liðið sækir Stjörnuna heim í dag klukkan 14:00. Stigalega séð er lítið í húfi en fyrir leikinn er ljóst að Þór/KA endar í 2. sæti deildarinnar og Stjarnan nær 3. sætinu.

Þetta er þó ekki síðasti leikur stelpnanna í sumar en á miðvikudaginn mæta þær stórliði Wolfsburg í síðari viðureign liðanna í Meistaradeildinni. Eins og kom fram fyrr í vikunni þá verður Þór/KA án þeirra Ariana Calderon, Bianca Sierra og Sandra Mayor en þær voru kallaðar til undirbúnings með Mexíkóska landsliðinu.

Það er því frábært tækifæri í dag fyrir þær stelpur sem hafa fengið færri tækifæri á að sýna sig gegn einu sterkasta liði landsins. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í Garðabæinn og styðja stelpurnar okkar sem hafa verið frábærar í sumar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is