Stórleikur hjá Þór/KA á mánudag

Fótbolti
Stórleikur hjá Þór/KA á mánudag
Stelpurnar eru klárar í slaginn (mynd Þórir Tr.)

Kvennalið Þórs/KA á stórleik á morgun, mánudag, þegar ríkjandi Íslandsmeistarar Stjörnunnar koma í heimsókn á Þórsvöll en leikurinn hefst klukkan 17:30.

Okkar stelpur eru á toppi deildarinnar með 5 stiga forskot á Breiðablik þegar aðeins þrír leikir eru eftir. Það er því gríðarlega mikið undir í leiknum en sigur myndi fara langleiðina með að tryggja Íslandsmeistaratitilinn en á sama tíma bíður Breiðablik átekta og reynir að minnka forskotið.

Reyndar gæti það gerst að stelpurnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn en ef sigur vinnst á Stjörnunni og Breiðablik nær ekki að vinna sinn leik þá verður forskotið á toppnum of stórt.

Þór/KA vann fyrri leik liðanna í deildinni í Garðabænum 1-3 þar sem Agla María Albertsdóttir kom Stjörnunni yfir strax á 3. mínútu en Sandra Mayor, Natalia Gomez og Hulda Ósk Jónsdóttir svöruðu fyrir Þór/KA og sterkur sigur staðreynd.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og styðja stelpurnar til sigurs, þetta er einfaldlega stærsti leikur sumarsins og algjörlega ljóst að stelpurnar eiga okkar stuðning skilinn fyrir frábært sumar til þessa, nú þarf bara að klára dæmið og leikurinn á morgun er risahluti af því, áfram Þór/KA!

 FÉLAGLUJTMÖRKNETSTIG
1 Þór/KA 15 12 2 1 37  -  12 25 38
2 Breiðablik 15 11 0 4 38  -  10 28 33
3 Valur 15 10 1 4 37  -  16 21 31
4 ÍBV 15 9 4 2 31  -  16 15 31
5 Stjarnan 15 9 3 3 35  -  14 21 30
6 FH 15 6 1 8 15  -  22 -7 19
7 Grindavík 15 4 2 9 13  -  38 -25 14
8 KR 15 4 0 11 12  -  34 -22 12
9 Fylkir 15 2 2 11 12  -  32 -20 8
10 Haukar 15 0 1 14 10  -  46 -36 1

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is