Þór/KA gjörsigraði FH 9-1!

Fótbolti
Þór/KA gjörsigraði FH 9-1!
Margrét átti ótrúlega innkomu (mynd: Þ.Tr.)

Þór/KA tók á móti FH í dag eftir smá pásu frá Pepsi deildinni vegna Meistaradeildar Evrópu. Liðið tapaði síðasta leik sínum í deildinni og þá fór mikil orka í að tryggja sæti í næstu umferð auk þess sem dregið var í dag. Leikur dagsins var því mikill prófsteinn á liðið en eins og svo oft áður þá var það ekki að vefjast fyrir okkar frábæra liði.

Þór/KA 9 - 1 FH
1-0 Andrea Mist Pálsdóttir ('18)
2-0 Andrea Mist Pálsdóttir ('40)
3-0 Lára Einarsdóttir ('49)
4-0 Sandra Mayor ('58)
5-0 Sandra María Jessen ('60)
6-0 Margrét Árnadóttir ('62)
7-0 Sandra Mayor ('65)
8-0 Margrét Árnadóttir ('72)
9-0 Sandra Mayor ('87)
9-1 Helena Ósk Hálfdánardóttir ('89)

Strax frá upphafssparkinu mátti sjá í hvað stefndi, stelpurnar pressuðu FH liðið stíft og sóttu án afláts. Það kom því ekki á óvart að fyrsta markið kom snemma en það gerði Andrea Mist Pálsdóttir með geggjuðu skoti uppúr aukaspyrnu sem gestunum tókst ekki að koma í burtu.

Það var svo á 40. mínútu að Andrea Mist tvöfaldaði forskotið, eftir laglegt samspil hjá Söndru Maríu og Huldu Ósk barst boltinn til Andreu sem kláraði af stakri snilld og allt útlit fyrir góðan sigur Þórs/KA. En ég fullyrði að enginn hafi séð fyrir þá veislu sem síðari hálfleikur var.

Lára Einarsdóttir var ekki lengi að auka forskotið í þeim síðari með góðum skalla uppúr hornspyrnu og í kjölfarið var nóg að gera fyrir stúkuna að fylgjast með gangi mála því mörkin komu á færibandi en Margrét Árnadóttir kom inná sem varamaður og átti heldur betur eftir að láta til sín taka.

Sandra Mayor breytti stöðunni í 4-0 á 58. mínútu eftir að hún sólaði sig í gegn og skoraði listilega. Strax á 60. mínútu skoraði nafna hennar hún Sandra María fékk boltann inn fyrir frá Margréti og Sandra var ekki í vandræðum með að finna leiðina framhjá Anítu í marki FH.

Tveimur mínútum síðar skoraði Margrét sjálf eftir góða sendingu frá Söndru Mayor. Margrét þakkaði pent fyrir sig því hún lagði svo upp fyrir Söndru Mayor þegar hún átti fullkomna sendingu inn í teig þar sem Mayor tók boltann upp í loft og kláraði meistaralega með hjólhestaspyrnu!

Mayor var greinilega þakklát henni Margréti því ekki leið svo á löngu uns hún var komin í gegn en renndi boltann út til Margrétar sem skoraði áttunda markið í leiknum. Hvort að markið hafi vakið FH-liðið því þær fóru loksins að sjá til marks okkar liðs.

En það breytti ekki því að Sandra Mayor ákvað að fullkomna þrennuna eftir hárnákvæma langa sendingu frá Ágústu Kristinsdóttur og gæðin í Mayor sýndu sig enn og aftur þegar hún kom boltanum í netið og staðan orðin 9-0. En Helena Ósk Hálfdánardóttir náði að laga stöðuna ef hægt er að orða það þannig þegar boltinn barst til hennar við markteiginn og hún skoraði þar með tíunda mark leiksins.

Ótrúlegur sigur í höfn sem lyftir stelpunum á toppinn tímabundið því Breiðablik á leik inni. En sigurinn setur mikla pressu á Blikastelpur auk þess sem sigurinn stórbætir markatölu Þórs/KA en hún er nú 35 mörk í plús. Algjörlega frábær frammistaða og greinilegt að hausinn er hárrétt stilltur hjá liðinu og hungrið eftir titlinum gríðarlegt. Það verður því ótrúlega gaman að fylgjast með endasprettinum í deildinni!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is