Viðburður

Fótbolti - 17:45

Þór/KA hefur leik - Valskonur mæta í Bogann

Á fimmtudaginn kl. 17:45 mætir Þór/KA Val í fyrsta leik Pepsi-deildar kvenna. Leikið verður í Boganum og hefst leikurinn kl. 17:45 eins og áður segir.

Þór/KA er spáð góðu gengi í sumar og verður gaman að fylgjast með stelpunum okkar í eldlínunni. Mótið hefst óvenju snemma í ár vegna HM kvenna í knattspyrnu sem er á miðju sumri og þarf að gera hlé á deildinni á meðan.

Liðið mun frumsýna nýja búninga á fimmtudaginn. Það kostar 1000kr inn - og hvetjum við alla Akureyringa til þess að mæta og styðja við bakið á stelpunum í baráttunni.

Áfram Þór/KA


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is