Þór/KA lagði Breiðablik í baráttuleik

Fótbolti
Þór/KA lagði Breiðablik í baráttuleik
Borgarstjórinn skoraði tvö í frábærum sigri!

Það var enginn smá slagur á Kópavogsvelli í dag þegar toppliðin í Pepsi deild kvenna mættust. Ljóst var að okkar stelpur í Þór/KA myndu halda toppsætinu en stóra spurningin var hversu stórt forskotið yrði.

Breiðablik 1 - 2 Þór/KA
0-1 Sandra Mayor ('37)
1-1 Rakel Hönnudóttir ('51)
1-2 Sandra Mayor ('86)


Hér má sjá umfjöllun RÚV um leikinn

Mikil stöðubarátta einkenndi fyrstu mínútur leiksins og var ljóst að hvorugt liðið vildi fá á sig mark en bæði liðin höfðu fengið einungisá sig 4 mörk í deildinni. 

Á 16. mínútu fékk Þór/KA aukaspyrnu, flestir reiknuðu með skoti en Andra Mist Pálsdóttir ákvað að renna boltanum til hliðar við varnarvegginn þar sem Borgarstjórinn gerði vel og kom boltanum fyrir markið en Blikastúlkur náðu að koma boltanum í burtu.

Blikar fengu í kjölfarið tvö hættuleg færi en vörn Þórs/KA stóð fyrir sínu og þá er Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir öryggið uppmálað í markinu.

Það var svo á 37. mínútu að Hulda Ósk var með boltann fyrir framan vörn Blika, sá gott hlaup hjá Söndru Mayor og renndi boltanum fullkomlega milli miðvarðanna og Sandra Mayor var því komin ein í gegn, lék á Sonný Láru í markinu og skoraði í autt markið.

Áfram hélt sama baráttan og lítið um færi þannig að hálfleikstölur voru 0-1 Þór/KA í vil. Síðari hálfleikur hófst á svipuðum nótum en á 51. mínútu átti Blikinn Andrea Rán Hauksdóttir hörkuskot á markið en Bryndís Lára varði vel í horn. En úr hornspyrnunni kom jöfnunarmarkið þegar Rakel Hönnudóttir skallaði boltann í netið.

Heimastúlkur efldust við markið og náðu ágætu taki á leiknum enda þurftu þær svo sannarlega á sigri að halda til að minnka forskot Þórs/KA á toppnum. Aukin harka kom í leikinn sem var eðlilegt enda ansi mikið undir.

En okkar stúlkur gáfust að sjálfsögðu ekki upp og á 68. mínútu átti Sandra Mayor góðan skalla á Söndru Maríu Jessen sem lék á varnarmann og kom sér í gott færi en Sonný varði frá henni. Hulda Björg braut í kjölfarið á Fanndísi sem brást illa við og gaf Huldu olnbogaskot beint í andlitið. Af einhverri ástæðu sá dómari leiksins ekki ástæðu til að spjalda Fanndísi en í flestum tilfellum hefði svona brot verðskuldað rautt spjald!

Á 84. mínútu fékk svo áðurnefnd Fanndís fínt færi þegar hún kom sér inn í teiginn en skaut í stöngina. Hvort að karma hafi komið þarna við sögu skal ég ekki segja en þarna slapp okkar lið með skrekkinn.

Stuttu síðar var svo brotið á Söndru Mayor rétt fyrir utan teiginn, Borgarstjórinn tók spyrnuna sjálf og það var ekki að spyrja að því, boltinn í stöngina og inn en Sonný í marki Blika virtist hafa misreiknað skotið og skutlaði sér ekki á eftir boltanum. En spyrnan örugg og okkar lið aftur komið yfir.

Stelpurnar gerðu svo vel í því að drepa leikinn og sigla frábærum 1-2 sigri heim. Liðið er því enn ósigrað á toppi deildarinnar og með 6 stiga forskot á næstu lið. Breiðablik fellur hinsvegar niður í 4. sætið og er 7 stigum á eftir Þór/KA. Nú eru 7 umferðir eftir af deildinni en næst á dagskrá er EM í Hollandi þar sem Sandra María Jessen fyrirliði okkar verður í hasarnum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is