Þór/KA leikur á N-Írlandi í Meistaradeildinni

Fótbolti
Þór/KA leikur á N-Írlandi í Meistaradeildinni
Íslandsmeistararnir eru klárir í slaginn!

Íslandsmeistarar Þórs/KA leika að sjálfsögðu í Meistaradeild Evrópu í ár, í dag var dregið í riðla nú rétt í þessu. Alls er leikið í 10 riðlum og fer sigurvegari riðilsins beint áfram í 32-liða úrslit og þau tvö lið með besta árangurinn í 2. sætinu. Það er því alveg ljóst að ef stelpurnar ætla sér áfram í 32-liða úrslitin þá þurfa þær að stefna á sigur í riðlinum.

Riðill Þórs/KA fer fram á Norður-Írlandi og verður lið Linfield gestgjafi riðilsins. Auk Þórs/KA og Linfield verða Wexford Youths frá Írlandi og Ajax frá Hollandi í riðlinum. Leikirnir fara fram 7.-13. ágúst og verður mjög áhugavert að sjá hvernig stelpurnar munu pluma sig í þessu krefjandi verkefni.

Þetta er í annað skiptið sem Þór/KA leikur í Meistaradeildinni en liðið varð Íslandsmeistari árið 2012 og lék því árið eftir í þessari mögnuðu keppni. Þar hófu stelpurnar leik í 32-liða úrslitum og mættu Rússneska liðinu Z. Krasnogorsk en Rússarnir unnu einvígið samanlagt 2-6.

Þá lék fyrirliði Þórs/KA hún Sandra María Jessen í Meistaradeildinni á nýliðinni leiktíð með Tékkneska stórliðinu Slavia Prag en Slavia féll út í 8-liða úrslitum gegn Wolfsburg sem fór alla leið í úrslitaleikinn. Það er því ágætis reynsla í okkar hóp fyrir slíkum stórleikjum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is