Þór/KA tekur á móti FH á morgun

Fótbolti
Þór/KA tekur á móti FH á morgun
Mikilvægur leikur á morgun! (mynd: Þ.Tr)

Slagurinn í Pepsi deild kvenna heldur áfram hjá Þór/KA eftir ævintýrið í Meistaradeildinni. Stelpurnar taka á morgun, föstudag, á móti FH í 14. umferð deildarinnar. Það er mikið undir í deildinni enda aðeins 5 leikir eftir en leikurinn á morgun hefst klukkan 17:00.

Fyrir leikinn eru stelpurnar í 2. sæti deildarinnar með 32 stig en Breiðablik situr á toppnum með 34 stig. Það er því gríðarleg spenna í titilbaráttunni og ljóst að stelpurnar verða að vinna leikinn á morgun til að halda áfram pressu á Breiðablik.

Er liðin mættust fyrr í sumar á Kaplakrikavelli vannst 1-4 sigur þar sem Sandra Mayor gerði 2 mörk og þær Arna Sif Ásgrímsdóttir og Andrea Mist Pálsdóttir gerðu 1 mark hvor. En eins og kom í ljós í síðustu umferð þá er enginn leikur gefins í deildinni og stelpurnar þurfa að vera klárar í slaginn til að landa 3 stigum í hús.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á Þórsvöll á morgun og hvetja stelpurnar til sigurs, áfram Þór/KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is