Toppslagur hjá Þór/KA á morgun

Fótbolti
Toppslagur hjá Þór/KA á morgun
Stelpurnar fagna sigri á Blikum í fyrra

Það er enginn smá leikur í Pepsi deild kvenna á morgun, sunnudag, þegar Íslandsmeistarar Þórs/KA taka á móti toppliði Breiðabliks í uppgjöri toppliða deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og má reikna með svakalegum leik enda tvö bestu lið landsins.

Breiðablik er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eða 18 stig eftir fyrstu 6 leikina en á sama tíma eru okkar stelpur með 16 stig en þær gerðu 0-0 jafntefli gegn Selfoss í síðustu umferð. Sigur gegn Breiðablik myndi því lyfta stelpunum aftur á toppinn.

Þetta er hreinlega einn af úrslitaleikjum sumarsins en ef gestirnir fara með sigur af hólmi eru þær komnar með 5 stiga forskot á toppnum og í algjörri lykilstöðu, við þurfum því að fjölmenna í stúkuna og styðja okkar lið af krafti, áfram Þór/KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is