Vladimir Tufegdzic til liðs við KA

Fótbolti
Vladimir Tufegdzic til liðs við KA
Við bjóðum Vladimir velkominn í KA! (mynd: KSÍ)

Knattspyrnudeild KA og Vladimir Tufegdzic hafa komist að samkomulagi um að Vladimir gangi til liðs við KA og leiki með liðinu út tímabilið. Þessi 27 ára gamli Serbi mun gefa sóknarlínu KA meiri breidd og er mikil ánægja með komu hans hingað norður.

Vladimir er framherji og kemur til KA frá Víkingi Reykjavík, hann gekk til liðs við Víking árið 2015 og lék alls 60 leiki fyrir félagið og skoraði 18 mörk. Fyrir komu hans til Íslands lék hann með Serbnesku liðunum Metalac Trgovački, Mačva Šabac, Novi Sad, OFK Beograd, Voždovac, Sloga Petrovac na Mlavi, Donji Srem, Sinđelić Beograd, Zemun sem og Makedónska liðinu Gorno Lisiče.

Við bjóðum Vladimir velkominn í KA og hlökkum mjög til að sjá hann í gula búningnum!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is