20 ár frá fyrsta Íslandsmeistaratitli KA í handbolta

Almennt | Handbolti
20 ár frá fyrsta Íslandsmeistaratitli KA í handbolta
Íslandsmeistarar KA 1997

Í dag, 12 apríl, eru liðin 20 ár frá fyrsta Íslandsmeistaratitli KA í handknattleik. KA tryggði sér titilinn með sigri á Aftureldingu í KA-Heimilinu 24-22 og vann einvígi liðanna samanlagt 3-1. Af því tilefni rifjum við upp þennan frábæra sigur og þann mikla fögnuð sem braust út í kjölfarið.

Smelltu hér til að fræðast betur um þetta frábæra tímabil í sögu KA


Smelltu hér til að sjá fleiri myndbönd í leið KA að titlinum.

Íslandsmeistarar KA í handknattleik 1997. Aftari röð frá vinstri: Ingibjörg Ragnarsdóttir, nuddari, Leó Örn Þorleifsson, Sverrir Björnsson, Guðmundur A. Jónsson, Erlingur Kristjánsson, Heiðmar Felixson, Þorvaldur Þorvaldsson, Julian Duranona, Sergei Zisa, Árni Stefánsson, liðsstjóri. Fremri röð frá vinstri: Halldór Sigfússon, Sævar Árnason, Björgvin Þ. Björgvinsson, Hörður Flóki Ólafsson, Jakob Jónsson, Hermann Karlsson, Jóhann G. Jóhannsson, Alfreð Gíslason.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is