KA Podcastið - 21. júní 2018

Almennt | Fótbolti | Handbolti

KA hlaðvarpið heldur áfram göngu sinni en að þessu sinni fara þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Ágúst Stefánsson yfir síðustu leiki í fótboltanum hjá KA og Þór/KA ásamt því að ræða hinn gríðarlega mikilvæga toppslag hjá Þór/KA gegn Breiðablik á sunnudaginn. Þá hefur verið mikið líf á KA-svæðinu undanfarna daga og fara þeir að sjálfsögðu aðeins yfir þá hluti.

Þá kemur Heimir Örn Árnason í viðtal um nýtt hlutverk en hann verður þjálfari KA í handbolta í vetur ásamt Stefáni Árnasyni auk þess sem hann fer yfir magnaðan leikmannaferil sinn.

Við minnum á að KA Podcastið er aðgengilegt á podcast veitu iTunes.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is