Örfréttir KA - 12. mars 2018

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Blak

Tveir Bikarmeistaratitlar í blakinu, frábær sigur í Lengjubikarnum og flott frammistaða í Coca-Cola bikarnum standa uppúr í örfréttapakka vikunnar, kynnið ykkur málið!

Blak

Karlalið KA í blaki sem nýverið varð Deildarmeistari tryggði sér Bikarmeistaratitilinn um helgina með 3-1 sigri á HK í úrslitaleik. Áður hafði KA unnið 3-0 sigur á Hrunamönnum í undanúrslitum. Þetta er þriðji Bikarmeistaratitill KA á síðustu fjórum árum og sá áttundi í heildina, geri aðrir betur! Quentin Moore var stigahæsti leikmaður KA með 24 stig og var hann jafnframt valinn maður leiksins.

Þetta var þó ekki eini Bikarmeistaratitill helgarinnar því að 3. flokkur kvenna vann Huginn/Leikni 3-2 í æsispennandi úrslitaleik og óskum við stelpunum að sjálfsögðu til hamingju með titilinn.

Handbolti

Í handboltanum lék kvennalið KA/Þórs í undanúrslitum Coca-Cola bikarsins en þar lék liðið gegn sterku liði Hauka. Leikurinn var í járnum allan tímann og stóðu stelpurnar sig eins og hetjur en urðu á endanum að játa sig sigraðar 23-21. Martha Hermannsdóttir var markahæst með 6 mörk og Hulda Bryndís Tryggvadóttir gerði 4.

Fótbolti

Í fótboltanum var toppslagur í Lengjubikarnum þegar KA tók á móti Breiðablik. Daníel Hafsteinsson kom KA yfir eftir um 40 sekúndna leik og Elfar Árni Aðalsteinsson tvöfaldaði forystuna skömmu síðar. Aleksandar Trninic skoraði svo með þrumufleyg úr aukaspyrnu og voru hálfleikstölur 3-0. Í þeim síðari bætti Elfar Árni svo við öðru marki úr vítaspyrnu og voru lokatölur 4-0.

Milan Joksimovic bakvörður KA meiddist illa í leiknum. Hnéskel hans færðist til en það tókst að koma henni aftur á sinn stað. Frekari fregnir af stöðu hans eru væntanlegar á næstunni.

Kvennamegin náðu Íslandsmeistarar Þór/KA sér í sitt fyrsta stig í Lengjubikarnum þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Breiðablik. Andrea Mist Pálsdóttir kom liðinu í 1-0 með glæsilegu skoti en Agla María Albertsdóttir jafnaði fyrir gestina.

Næstu leikir

Það er mikið framundan en úrslitakeppnin í blakinu hefst í vikunni. Kvennalið KA mætir Þrótti Reykjavík á þriðjudag og fimmtudag. Karlalið KA mætir hinsvegar Aftureldingu og það á fimmtudag og laugardag.

Lengjubikarinn heldur áfram en Þór/KA mætir ÍBV á Leiknisvelli á föstudaginn og KA mætir Þrótti Reykjavík í Egilshöll á laugardaginn og vantar að minnsta kosti stig til að tryggja sæti í undanúrslitum.

Þá eru tveir stórleikir í handboltanum á laugardaginn en bæði karlalið KA og kvennalið KA/Þórs taka á móti HK. Þetta er lokaleikurinn í Grill 66 deild kvenna og hreinn úrslitaleikur um sigur í deildinni


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is