Frábær byrjun á EM hjá Degi og U-18

Handbolti

Dagur Gautason og félagar hans í U-18 landsliði Íslands í handbolta byrja frábærlega á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Króatíu. Ísland leikur í riðli með Póllandi, Svíþjóð og Slóveníu en Ísland býr yfir gríðarlega sterku liði og er búist við miklu af strákunum.

Í fyrsta leik liðsins sem fram fór í gær mættu strákarnir Pólverjum. Eftir smá brösuga byrjun tóku strákarnir völdin í leiknum og leiddu 12-9 í hálfleik. Í þeim síðari héldu strákarnir góðu forskoti og unnu að lokum sanngjarnan 25-20 sigur. Dagur var markahæstur í leiknum með 9 mörk og var magnaður.

Í dag mætti liðið Svíþjóð og var búist við hörkuleik eins og alltaf þegar þessar þjóðir mætast. Fyrri hálfleikur var stál í stál en Ísland leiddi 14-12 að honum loknum. Strákarnir náðu svo góðu taki á leiknum í þeim síðari og unnu að lokum 29-24 sigur en Dagur gerði 3 mörk í leiknum.

Lokaleikur strákanna í riðlinum er svo á sunnudaginn gegn Slóveníu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is