Strandhandboltamót KA fer fram á morgun!

Handbolti

Á morgun, sunnudag, fer fram strandhandboltamót sem Handknattleiksdeild KA heldur í samstarfi við Íslensku sumarleikana í Kjarnaskógi. Þetta er í fyrsta skiptið sem keppt er í strandhandbolta fyrir norðan og er stefnan á að mótið verði árlegt hér eftir.

Keppt verður í krakka og fullorðinsflokkum og leika kynin saman í blönduðum liðum. Alls taka þátt 7 lið í krakkaflokknum og 8 í flokki fullorðinna. Fjörið hefst klukkan 13:00 þegar krakkamótið hefst og lýkur þeirra móti um 15:30. Þá taka þeir fullorðnu við og er áætlað að úrslitaleikur þeirrar keppni hefjist 18:30.

Hver leikur er 10 mínútur og er leikið í tveimur riðlum. Að riðlakeppninni lokinni verður svo krossspil um sæti en leikjaplanið má sjá hér fyrir neðan:

Krakkaflokkur

Tími Riðill Leikur
13:00 R1 Ellert - Brynjólfur
13:12 R1 Rakel - Björgvin
13:24 R2 Fornhagi - Ólöf Heiða
13:36 R1 Brynjólfur - Rakel
13:48 R1 Björgvin - Ellert
14:00 R2 Ellert Junior - Fornhagi
14:12 R1 Björgvin - Brynjólfur
14:24 R1 Ellert - Rakel
14:36 R2 Ólöf Heiða - Ellert Junior
14:48 Sæti Leikur um 5. sætið
15:00 Sæti Leikur um 3. sætið
15:12 Sæti Leikur um 1. sætið


Fullorðinsflokkur

Tími Riðill Leikur
15:30 R1 JB - Einar Rafn
15:42 R1 Ómarsdóttir - Ólafur Sig
15:54 R2 Gunni Björns - Old Ladies
16:06 R2 Aldís Ásta - Hamrarnir
16:18 R1 Einar Rafn - Ómarsdóttir
16:30 R1 Ólafur Sig - JB
16:42 R2 Old Ladies - Aldís Ásta
16:54 R2 Hamrarnir - Gunni Björns
17:06 R1 Ólafur Sig - Einar Rafn
17:18 R1 JB - Ómarsdóttir
17:30 R2 Hamrarnir - Old Ladies
17:42 R2 Gunni Björns - Aldís Ásta
17:54 Sæti Leikur um 7. sætið
18:06 Sæti Leikur um 5. sætið
18:18 Sæti Leikur um 3. sætið
18:30 Sæti Leikur um 1. sætið

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is