Frábær árangur KA á Símamótinu

Fótbolti
Frábær árangur KA á Símamótinu
Símamótsmeistarar í 7. flokki!

Um helgina fór fram hið árlega Símamót en mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna í knattspyrnu og fer mótið fram í Kópavogi í umsjá Breiðabliks. KA mætti með alls 16 lið til leiks, 6 í 5. flokki, 7 í 6. flokki og 3 í 7. flokki og má með sanni segja að stelpurnar okkar hafi staðið sig frábærlega á mótinu.

Í 7. flokki gerðu stelpurnar í KA 1 sér lítið fyrir og unnu mótið með glæsibrag og eru því Símamótsmeistarar. Þá hampaði KA 3 einnig bikar en stelpurnar stóðu uppi sem sigurvegarar í 7. deild.

Í 5. flokki vann KA 1 2. deildina og komu því einnig heim með bikar. Hin KA liðin stóðu sig einnig mjög vel og er alveg klárt mál að þetta flotta mót mun skila mikilli reynslu hjá stelpunum og framtíðin er svo sannarlega björt í kvennastarfinu okkar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is