KA sækir Stjörnuna heim á morgun

Fótbolti
KA sækir Stjörnuna heim á morgun
Hörkuleikur framundan (mynd: Þórir Tryggva)

Eftir þó nokkuð hlé er loksins komið að næsta leik hjá KA í Pepsi deild karla þegar liðið sækir Stjörnuna heim í Garðabæinn á morgun, miðvikudag. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Garðbæingar þurfa nauðsynlega á sigri að halda en þeir eru í harðri baráttu við Valsmenn um Íslandsmeistaratitilinn á sama tíma og KA er fyrir miðri deild en getur með sigri lyft sér upp í 6. sætið.

Er liðin mættust á Akureyri fyrr í sumar fóru Stjörnumenn með 1-2 sigur af hólmi en Þorsteinn Már Ragnarsson og Hilmar Árni Halldórsson gerðu mörk gestanna á meðan Ásgeir Sigurgeirsson gerði mark okkar KA manna.

Þó að lítið sé undir hjá okkar liði eru menn staðráðnir í að sækja þrjú stig á morgun og hefna þar með fyrir tapið fyrir norðan. Við hvetjum að sjálfsögðu alla KA-menn fyrir sunnan til að drífa sig á Samsung völlinn og styðja strákana til sigurs.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is