Kristófer Páll Viðarsson á láni til KA

Fótbolti

KA og Víkingur Reykjavík hafa komist að samkomulagi um það að Kristófer Páll Viðarsson leiki með KA næsta árið eða svo. Kristófer Páll er 19 ára gamall sóknarmaður sem lék með Leikni Fáskrúðsfirði síðasta sumar í Inkassodeildinni. Kristófer, sem er fæddur árið 1997, skoraði 10 mörk í 22 leikjum í sumar fyrir Leikni, þar af fjögur í ótrúlegum sigri liðsins á HK í síðustu umferð Inkassodeildarinnar

Þetta eru gleðitíðindi fyrir KA-menn að eins ungur og efnilegur leikmaður eins og Kristófer vilji koma til félagsins og spreyta sig í deild þeirra bestu á næsta ári. Þrátt fyrir ungan aldur hefur pilturinn leikið 69 leiki í deildarkeppni á Íslandi og skoraði í þeim 30 mörk.

Kristófer er uppalinn hjá Leikni F en gekk til liðs við Víking R árið 2014 en hefur ekki enn leikið leik með meistaraflokki félagsins. Það verður gaman að fylgjast með Kristófer í gulu og bláu næsta sumar. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is