Stephanie Bukovec til liðs við Þór/KA

Fótbolti
Stephanie Bukovec til liðs við Þór/KA
Við bjóðum Stephanie velkomna norður!

Íslandsmeistarar Þór/KA hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir síðari hluta Pepsi deildar kvenna með komu Stephanie Bukovec. Stephanie er markvörður en Sara Mjöll Jóhannsdóttir sem hefur verið varamarkvörður liðsins er á leiðinni í nám til Bandaríkjanna og því vantaði að fylla í markvarðarstöðuna.

Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir sem varði mark liðsins á síðasta tímabili tilkynnti í vetur að hún myndi leggja hanskana á hilluna og einbeita sér að spjótkasti. Helena Jónsdóttir kom í markið í hennar stað en hún sleit krossband á undirbúningstímabilinu og Bryndís Lára kom þá til baka og varði mark liðsins í upphafi sumars.

Sænski markvörðurinn Johanna Henriksson gekk til liðs við liðið í sumar og hefur staðið sig með prýði í síðustu leikjum. Upphaflega var samningurinn við hana einungis til tveggja mánaða en hann hefur nú verið framlengdur út tímabilið.

Stephanie Bukovec er fædd árið 1995 og hefur leikið með króatíska landsliðinu frá árinu 2017. Hún kemur frá hollenska liðinu Pec Zwolle en áður hefur hún leikið með sænska liðinu Tocksfors og Belmont Bruins í Nashville í Bandaríkjunum og liði Oakland-háskóla í Kaliforníu.

Við bjóðum Stephanie velkomna til Akureyrar auk þess sem við gleðjumst yfir framlengingu á samningi við Johönnu. Það er ljóst að það verður hart barist um markmannsstöðuna hjá okkar frábæra liði.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is