Aldís Ásta hjá KA/Þór næstu 2 ár

Handbolti
Aldís Ásta hjá KA/Þór næstu 2 ár
Aldís og Haddur handsala samninginn

Aldís Ásta Heimisdóttir skrifaði nú í morgun undir nýjan samning við KA/Þór í handboltanum. Samningurinn er til tveggja ára og er mikil ánægja hjá meistaraflokksráði að halda Aldísi Ástu áfram hjá liðinu.

KA/Þór leikur í Olís deildinni á næsta tímabili eftir stórkostlegan sigur í Grill 66 deildinni á nýliðnu tímabili en stelpurnar töpuðu ekki leik og fóru alla leið í undanúrslit bikarkeppninnar. Aldís Ásta var lykilmaður í liðinu og lék hún 15 af 16 deildarleikjum tímabilsins og gerði í þeim alls 50 mörk.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is