Elfar Halldórsson spilar með KA í vetur

Handbolti

Elfar Halldórsson mun leika með KA í vetur en Elfar er einn af þeim örfáu leikmönnum sem spila með liðinu í dag sem léku einnig með meistaraflokki KA áður en liðið var sameinað í Akureyri árið 2006.

Elfar, sem er rétt rúmlega þrítugur, er skytta og leikur vinstra megin. Hann lék 17 leiki með Hömrunum í fyrra í 1. deildinni og skoraði 52 mörk í þeim. t Hann mun koma til með að styrkja ungt lið KA töluvert.

KA fagnar því að hafa Elfar í sínum röðum, enda með gríðarlega mikið KA-hjarta og ástríðu fyrir félaginu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is