Fyrsti heimaleikur KA/Þórs á laugardaginn

Handbolti
Fyrsti heimaleikur KA/Þórs á laugardaginn
Fyrsti heimaleikur vetrarins hjá KA Þór

KA/Þór spilar sinn fyrsta leik í Grill 66 deild kvenna næstkomandi laugardag. Hefst leikurinn kl 15:00 og vonumst við eftir fjölmenni á leikinn. Stelpunum er spáð 2. sæti í deildinni í vetur, og er það ljóst að ef góður árangur á að nást í vetur verða heimaleikirnir gríðarlega mikilvægir. Í fyrra náði KA/Þór þeim ótrúlega árangri að fara í gegnum veturinn taplausar á heimavelli og því ljóst að stelpurnar okkar eru erfiðar heim að sækja. 

Hvetjum því alla að koma og styðja stelpurnar til sigurs, það verður frábær umgjörð kringum leikinn, hoppukastali og grillaðar pylsur fyrir leik og svo vonandi frábær handbolti sem stelpurnar bjóða upp á móti Val U.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is