Jón Heiðar Sigurðsson spilar með KA í vetur

Handbolti
Jón Heiðar Sigurðsson spilar með KA í vetur
Jón ásamt Stefáni þjálfara við undirskrift

Jón Heiðar Sigurðsson mun leika í gulu treyjunni í vetur. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir liðið en Jón er fjölhæfur leikmaður sem leikur oftast á miðjunni en getur leyst af báðar skyttustöðurnar.

Jón Heiðar, þrátt fyrir ungan aldur er gríðarlega reynslumikill. Hann lék áður með Gróttu, Hömrunum og Akureyri Handboltafélagi. Hann er uppalinn KA-maður. Jón lék 19 leiki fyrir Hamrana í fyrra og skoraði í þeim 72 mörk í 1. deildinni.

Jón verður í eldlínunni um helgina þegar að KA heldur suður yfir heiðar og spilar tvo æfingaleiki við HK og Hauka. Heimasíðan mun flytja fréttir af úrslitum þeirra leikja eftir helgi. 

Jón er mikill liðsstyrkur fyrir KA-liðið, en ásamt því að spila handbolta mun hann þjálfa 4. flokk karla hjá félaginu. Við bjóðum Jón Heiðar kærlega velkominn heim. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is