Jónatan áfram með KA/Þór

Handbolti
Jónatan áfram með KA/Þór
Haddur og Jonni handsala samninginn

Jónatan Magnússon hefur skrifað undir nýjan 2 ára samning sem þjálfari meistaraflokks KA/Þórs í kvennahandboltanum. Jonni hefur þjálfað liðið síðustu tvö ár, í fyrra fór liðið í úrslit umspilsins um laust sæti í efstu deild en í ár stóð liðið uppi sem sigurvegari í Grill 66 deildinni og leikur því í deild þeirra bestu á komandi tímabili.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir félagið enda býr Jonni yfir gríðarlegri reynslu og var árangurinn í ár algjörlega frábær, ekki nóg með að tapa ekki leik í Grill 66 deildinni þá fór liðið alla leið í undanúrslit Bikarkeppninnar þar sem liðið tapaði naumlega gegn sterku liði Hauka.

Þá hefur Jonni einnig verið yfirþjálfari yngri flokka í handboltanum og hlökkum við mjög til áframhaldandi samstarfs með Jonna.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is