KA og KA/Þórs spilastokkar til sölu

Handbolti
KA og KA/Þórs spilastokkar til sölu
Upplifaðu drauminn að spila með KA og KA/Þór!

Nú er í fullum gangi forsala á sérstökum spilastokkum með leikmönnum KA og KA/Þórs í handbolta. Stokkurinn kostar 1.500 krónur í forsölu og stendur hún til 25. mars, eftir það mun stokkurinn kosta 2.000 krónur.

Þeir sem vilja tryggja sér stokk í forsölu geta gert það með því að senda tölvupóst á kahandbolti@gmail.com og senda nafn og kennitölu ásamt fjölda stokka. Svo þarf að greiða þá til að staðfesta pöntun en það er gert með millifærslu. Innlegg skal lagt inn á reikning 0162 – 26 – 11888 og kennitala 571005 – 0180. 

Áætluð afhending á stokkum pöntuðum í forsölu er 27. apríl. Ekki missa af þessu tækifæri á að eignast flottan spilastokk og styrkja handboltastarfið í leiðinni!

Áfram KA og KA/Þór!
Stjórn Handknattleiksdeildar KA


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is