KA Podcastið - 13. apríl 2018

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Blak

Þá er komin ný viðbót í KA flóruna og er það útvarpsspjall eða Podcast eins og flestir þekkja það sem. Við stefnum á að vera dugleg að ræða mál líðandi stundar hjá félaginu og fá leikmenn og aðra tengdu starfinu í skemmtilegt spjall.

Í fyrsta þætti KA podcastsins fara Siguróli Magni Sigurðsson, Birkir Örn Pétursson og Ágúst Stefánsson yfir stöðuna í blakeinvígi KA og HK, handboltatímabilið sem senn lýkur auk þess sem þeir renna yfir leikmannahóp KA í fótboltanum.

Þættirnir verða aðgengilegir í iTunes og hvetjum við ykkur eindregið til að hlusta og fylgjast vel með KA Podcastinu!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is