KA/Þór deildarmeistari! Olís-deildin á næsta tímabili

Handbolti
KA/Þór deildarmeistari! Olís-deildin á næsta tímabili
Martha lyftir bikarnum við gríðarlegan fögnuð!

Það var enginn smá slagur í lokaumferð Grill 66 deildar kvenna í KA-Heimilinu í gær þegar topplið deildarinnar KA/Þór og HK mættust. Fyrir leikinn munaði tveimur stigum á liðunum og ljóst að liðið sem myndi fara með sigur af hólmi myndi vinna deildina og fara beint upp í deild þeirra bestu að ári.

Leikurinn fór jafnt af stað en KA/Þór leiddi þó. Þegar líða fór á fyrri hálfleikinn náðu stelpurnar mjög góðu taki á leiknum og komust meðal annars í sex marka forskot. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 15-10 en þrátt fyrir það þá virtist sem HK liðið væri að koma sér betur í leikinn og smá blikur á lofti.

Tímalína fyrri hálfleiks

Enda kom á daginn að gestirnir byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og minnkuðu muninn í 15-12 og KA/Þór ekki búið að skora mark í rúmar 10 mínútur! En KA/Þór stelpurnar hafa sýnt það svo oft í vetur að þær hafa stáltaugar og þær brugðust hárrétt við. Í kjölfarið kom góður kafli og forskotið jókst smátt og smátt.

Tímalína seinni hálfleiks

Að lokum vannst stórkostlegur 30-21 sigur og sigurgleðin var ósvikin í leikslok. Liðið rétt missti af sæti í efstu deild á síðustu leiktíð en það endurtók sig svo sannarlega ekki í ár. KA/Þór tapaði ekki leik í deildinni og unnu því deildarmeistaratitilinn mjög svo sannfærandi. Stelpurnar gáfu tóninn strax í fyrstu umferðinni með sextán marka sigri og hafa ekki litið til baka síðan.


KA/Þór sigurvegari í Grill 66 deild kvenna tímabilið 2017-2018 (smelltu á myndina til að sjá hana stærri)

Mörk KA/Þór: Ásdís Guðmundsdóttir 8, Martha Hermannsdóttir 6, Steinunn Guðjónsdóttir 5, Katrín Vilhjálmsdóttir 3, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 3, Ásdís Sigurðardóttir 3 og Aldís Ásta Heimisdóttir 2 mörk.

Mörk HK: Þórunn Friðriksdóttir 5, Berglind Þorsteinsdóttir 4, Sóley Ívarsdóttir 3, Tinna Sól Björgvinsdóttir 3, Ágústa Huld Gunnarsdóttir 1, Karen Kristinsdóttir 1, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 1 og Kolbrún Arna Garðarsdóttir 1 mark.

Tölfræði leiksins

Frammistaðan er enn ein skrautfjöður í hatt þjálfarans Jónatans Magnússonar, og aðstoðarþjálfarans Þorvaldar Þorvaldssonar, það hefur verið magnað að fylgjast með liðinu í betur, og tvær frábærar frammistöður gegn liðum í Olís-deildinni, í Coca-Cola bikarnum, gefa okkur vonandi forsmekkinn af því sem koma skal. KA/Þór vann öruggan sigur á Fjölni í 8-liða úrslitunum og tapaði svo naumlega gegn Haukum í undanúrslitum bikarkeppninnar í Laugardalshöllinni eftir flotta frammistöðu.

Liðið er nú komið í verðskuldað frí frá keppni, en HK spilar í umspili um annað laust sæti í Olís-deildinni.

Innilega til hamingju stelpur, þjálfarar og allir þeir sem komu að liðinu í vetur með þessum glæsilega árangri!


Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir af áhorfendum og stemningunni með bikarinn í leikslok.

Leikurinn var í beinni útsendingu á KA-TV og hægt að horfa á útsendinguna hér að neðan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is