KA/Þór sigraði HK og fer í hreinan úrslitaleik við Fjölni

Handbolti

KA/Þór sigraði HK á heimavelli 24-22 um helgina og spilar hreinan úrslitaleik við Fjölni um laust sæti í efstu deild næsta laugardag kl. 16:00 í Dalhúsum í Grafarvogi.

Það var frábærlega mætt í KA-heimilið á laugardaginn þegar að KA/Þór sigraði HK í hörkuleik tveggja frambærilegra handboltaliða. KA/Þór leiddi lungan úr leiknum en um miðbik síðari hálfleiks komst þó HK yfir í nokkra stund. STelpurnar í KA/Þór nýttu alla sína reynslu og sigu frammúr á lokametrunum og tryggðu sér heimasigur. Stelpurnar eru því enn ósigraðar á heimavelli í vetur en þetta var þeirra síðasti heimaleikur í deildinni í vetur.

Á laugardaginn kl. 16:00 mætast KA/Þór og Fjölnir í Dalhúsum í Grafarvogi í uppgjöri efstu liðanna í deildinni. KA/Þór hefur tveggja stiga forskot á Fjölni en sigri Fjölni leikinn hirða þær efsta sætið af okkar stelpum en jafntefli dugir KA/Þór til þess að verða deildarmeistarar og tryggja sæti sitt í efstu deild að ári. 

Við hvetjum alla Akureyringa á höfuðborgarsvæðinu til þess að fjölmenna í Dalhús á laugardaginn og styðja stelpurnar í átt til sigurs í 1. deild kvenna. 

Markaskorarar KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 8, Katrín Vilhjálmsdóttir 5, Kolbrún Gígja Einarsdóttir 4, Erla Hleiður Tryggvadóttir 2, Sandra Kristín Jóhannesdóttir 1, Steinunn Guðjónsdóttir 1, Ásdís Guðmundsdóttir 1, Aldís Ásta Heimisdóttir 1, Kara Rún Árnadóttir 1.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is