Ólöf Marín í U-19 og Rakel Sara í U-17

Handbolti

Á dögunum voru valdir æfingahópar fyrir yngri landslið kvenna í handboltanum og á KA/Þór tvo fulltrúa í þeim hópum. Ólöf Marín Hlynsdóttir var valin í U-19 ára landsliðshópinn og Rakel Sara Elvarsdóttir var valin í U-17 ára landsliðið. Landsliðin munu æfa helgina 28.-30. september.

Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkar stelpur en Ólöf Marín var meðal annars valin besti leikmaður Norðlenska Greifamótsins og þá hefur Rakel Sara verið að koma sterk inn í meistaraflokk KA/Þórs en hún er einungis 15 ára og fer því upp um landsliðshóp.

Við óskum stelpunum til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is