Sigþór Gunnar Jónsson skrifar undir hjá KA

Handbolti
Sigþór Gunnar Jónsson skrifar undir hjá KA
Sigþór og Haddur handsala samninginn í gær.

Sigþór Gunnar Jónsson skrifaði í dag undir samning við KA og mun því vera með liðinu í átökunum í 1. deildinni næsta vetur. Þetta eru frábær tíðindi enda Sissi einn af okkar efnilegustu leikmönnum. 

Sigþór er fæddur árið 1998 og spilaði sitt fyrsta tímabil í meistaraflokki síðasta vetur. Hann er gríðarlega efnilegur leikmaður og hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands. Sigþór kom við sögu í fjórum leikjum síðasta vetur með Akureyri í Olís-deildinni og skoraði tvö mörk, ásamt því að leika stórt hlutverk með U-liðinu og síðan 3. flokki KA. Sigþór leikur sem vinstri skytta.

Hann er uppalinn hjá KA og er félagið gríðarlega ánægt að tryggja sér þjónustu Sigþórs næsta vetur og mun hann styrkja liðið í komandi átökum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is