Strandhandboltamót KA 23. júní

Handbolti

Handknattleiksdeild KA bryddar upp á mjög skemmtilegri nýjung þetta sumarið en það er strandhandboltamót. Mótið verður á strandblaksvöllunum í Kjarnaskógi laugardaginn 23. júní og verður leikið í blönduðum flokki það er að segja að strákar og stelpur munu spila saman.

Strandhandbolti hefur notið gríðarlegra vinsælda fyrir sunnan undanfarin ár og er frábært að loksins sé hægt að prófa sig í þessari framandi grein hér fyrir norðan. Við lofum miklu stuði og mikilli sól!

Hvert lið mun leika að minnsta kosti 4 leiki en fjórir leikmenn eru inná í hverju liði og leikur markmaður með í sókninni.

Krakkaflokkur (2004-2007 módel) mun keppa frá 9:00 til 12:00. Þátttökugjaldið er 2.000 krónur á hvern þátttakanda og er pizzaveisla að mótinu loknu.

Unglingaflokkur (2000-2003 módel) mun keppa frá 12:00 til 15:00. Þátttökugjaldið er 2.000 krónur á hvern þátttakanda og er pizzaveisla að mótinu loknu.

Fullorðinsflokkur (2000 módel og eldri) mun keppa frá 15:00 til 19:00. Þátttökugjaldið er 20.000 krónur á hvert lið og er hámark 5 í hverju liði. Innifalið eru grillaðir hamborgarar og ískaldir drykkir.

Skráning fer fram hjá siguroli@ka.is og er um að gera að skrá sig sem allra fyrst því það er fjöldatakmörkun í mótinu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is