Styttist í sumaræfingar í handboltanum

Handbolti

Lokahóf yngri flokka í handboltanum fór fram í síðustu viku en fyrir unga og efnilega krakka í 5. og 6. flokki (fædd 2004-2007) þá eru í boði sumaræfingar sem hefjast 28. maí. Æfingarnar hafa heppnast gríðarlega vel undanfarin ár og verið mikil ánægja en styrktaræfingar eru einnig í pakkanum enda mikilvægt að hlúa að þeim hluta.

Verð fyrir námskeiðið er 15.000 krónur, æfingarnar hefjast 28. maí og standa til 29. júní. Ef þið hafið einhverjar spurningar þá skuluð þið endilega hafa samband við jonni@ka.is eða koma í KA-Heimilið. Athugið að iðkendur eru enn í sama flokk og í vetur.

Smelltu hér til að skrá á sumaræfingarnar

Þjálfarar verða þeir Jónatan Magnússon og Stefán Árnason en eins og flestir ættu að vita þá þjálfa þeir einmitt meistaraflokkslið KA og KA/Þórs. Egill Ármann Kristinsson sér svo um styrktaræfingar.

Athugið að meðan skólastarf er enn í gildi þá er æfingataflan eftirfarandi fram að 6. júní:

  Mán Þri Mið Fim Fös
6. kk 14:15-15:15   16:00-17:00   Styrkur 14:15
6. kvk Styrkur 15:15 15:15-16:15   15:15-16:15  
5. kk   14:15-15:15   14:15-15:15 Styrkur 14:15
5. kvk Styrkur 15:15 15:15-16:15   15:15-16:15  


6. júní og til 29. júní er æfingataflan hinsvegar svona:

  Mán Þri Mið Fim Fös
6. kk 13:00-14:00   13:00-14:00   Styrkur 13:15
6. kvk Styrkur 15:15 15:15-16:15   15:15-16:15  
5. kk   13:00-14:00   13:00-14:00 Styrkur 13:15
5. kvk Styrkur 15:15 15:15-16:15   15:15-16:15  




Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is