U-20 í 16-liða úrslit á HM og U-16 í 9. sæti

Handbolti

Það er nóg um að vera hjá ungmennalandsliðum Íslands í handbolta um þessar mundir en U-20 ára kvennalandslið Íslands í handbolta er komið alla leiðina í 16-liða úrslit á Heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi eftir frábæra frammistöðu í riðlakeppninni.

Eftir jafntefli í fyrsta leik gegn Suður-Kóreu þá vannst 24-22 sigur á Slóveníu, 35-20 sigur á Kína og loks 23-22 sigur á Chile. Liðið tapaði einungis einum leik og var það gegn ógnarsterku liði Rússa 14-32. Í hópnum eru þær Aldís Ásta Heimisdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir leikmenn KA/Þórs og verður áhugavert að sjá hvort liðið nái að komast áfram í næstu umferð en á morgun leika stelpurnar gegn Noregi.

Þá lék U-16 ára kvennalandslið Íslands á European Open á dögunum en í þeim hópi var Rakel Sara Elvarsdóttir leikmaður KA/Þórs. Stelpurnar gerðu vel á mótinu og lentu á endanum í 9. sæti eftir sigur á Noregi 23-22 í leik um 9. sætið. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is