Arnór og Haraldur í æfingahóp U-16

Handbolti
Arnór og Haraldur í æfingahóp U-16
Arnór og Haraldur eru flottir fulltrúar KA í U-16

KA á tvo fulltrúa í æfingahóp Íslenska landsliðsins í handbolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri sem mun æfa dagana 31. ágúst til 2. september næstkomandi. Þetta eru þeir Arnór Ísak Haddsson og Haraldur Bolli Heimisson. Þjálfari liðsins er Maksim Akbachev.

Þetta landslið er býsna öflugt en strákarnir enduðu fyrr á árinu í 2. sæti á sterku móti í Grikklandi og lék Arnór Ísak með liðinu á mótinu. Við óskum strákunum til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is