Bikarinn: KA mætir Mílunni og KA/Þór FH

Handbolti
Bikarinn: KA mætir Mílunni og KA/Þór FH
Það má búast við hörkuleikjum í Bikarnum

Í dag var dregið í 32-liða úrslit Coca Cola bikars karla og 16-liða úrslit Coca Cola bikars kvenna. Karlalið KA fékk útileik gegn Mílunni á Selfossi en liðin mættust einmitt nýverið í deildinni á Selfossi þar sem KA vann góðan 22-26 sigur. Bikarleikur liðanna fer líklegast fram 9. eða 10. nóvember.

Kvennalið KA/Þór fékk hinsvegar heimaleik gegn FH en bæði lið leika í Grill 66 deildinni en hafa ekki mæst það sem af er tímabilinu. Leikur liðanna fer líklegast fram 10. eða 11. nóvember.

Annars þá eiga bæði lið útileik um helgina, karlaliðið sækir Þrótt heim á föstudag í Laugardalshöllina klukkan 19:30 og stefnir KA-TV á að sýna beint frá leiknum. Kvennaliðið sækir hinsvegar ÍR heim í Austurbergið á sunnudaginn klukkan 15:00.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is